Skapandi hópverkefni - Kennsluhugmyndir
Höfundar þessa verkefnis eru fimm nemendur á þriðja ári í grunnskólakennarafræðum á menntavísindasviði við Háskóla Íslands. Verkefni þetta er lokaverkefni okkar til B.Ed. og völdum við að fara þá leið að vinna að skapandi hópverkefni. Eins og nafnið gefur til kynna er unnið að því að skila verkefni sem reynir á sköpun en með ákveðinni yfirskrift sem heildarhópurinn kom sér saman um. 15 nemendur völdu að vinna að skapandi verkefni og meginþemað var samþætting námsgreina og samvinna kennara. Heildarhópnum var síðan skipt í þrjá minni hópa og okkar hópur valdi að vinna með kennsluhugmyndir, með áherslu á samþættingu og samvinnu kennara, sem gagnast getur kennurum jafnt sem kennaranemum.
Höfundar eru af sex mismunandi kjörsviðum innan Menntavísindasviðs: myndmenntar, tónlistar, leiklistar, dans, ensku, íslensku, náttúrufræði og matar, menningar, heilsu og hafa að auki tekið valáfanga úr öðrum kjörsviðum. Þeir telja það mikinn styrkleika að vera frá svo mismunandi sviðum og hefur það gagnast þeim í þessu verkefni.

skapandi_hopverkefni_2016_heildrgreinargerð_endurbaett_juni.pdf | |
File Size: | 880 kb |
File Type: |