Karen Óskarsdóttir Er fædd 16. nóvember árið 1992 og kemur frá Hellu. Hún leggur stund á grunnskólakennarafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hennar kjörsvið eru matur, menning og heilsa og náttúrufræði. Karen vinnur samhliða námi í íþróttamiðstöðinni á Hellu ásamt því stjórnar hún vinnuskóla Rangárþings Ytra sumrin 2015 og 2016. |
María Rós Valgeirsdóttir Er fædd 28. nóvember árið 1964 og kemur frá Reykjavík. Hún leggur stund á grunnskólakennarafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hennar kjörsvið er myndmennt og þess má geta að hún er höfundur myndefnis á þessari síðu. María vinnur samhliða námi sem forstöðumaður frístundaheimilisins Perlunnar og smiðjukennari í Breiðholtsskóla. |